Thursday, November 12, 2015

SEX4MONEY!



Ég las um daginn í blaði (eða á netinu) að í Danmörku þykir bara kúl að búa í lítilli íbúð. Það þykir nefnilega kúl að vera hagsýnn í Danaveldi, sel það ekki dýarar en ég keypti það.


Núna er ég samt að pæla sjúklega mikið í þessu - hvað er að vera hagsýnn?

Ég frétti af gaur sem ætlaði að kaupa sér bíl á 4millur því hann vildi vera hagsýnn, keypti sér rafmagns bíl.

Svo þekki ég fólk sem fer ótrúlega oft til útlanda.

Ég þekki líka fólk sem býr í risa húsum og kaupir sér fallega hluti.

Svo er ein gella sem býr heima hja mömmu sinni, hún vinnur eins og skepna og fer í ræktina!

Það er líka stór fjölskylda sem ég þekki sem keyrir um á risa jeppa sem eyðir fullt, fullt af bensíni.

Það þekkja líka allir unglingin sem eyðir öllum peningunum sínum í föt og skó.

Má maður bara ráða hvað er að vera hagsýnn? 

Ég ætla að ráðfæra mig við eina mjög klára vinkonu mína á morgunn um þetta!
(sorry(fyrirgefðu með sorry-ið)með allar stafsetningar villur og svigann inn í sviganum og allar grammar vitleysurnar)

En málið er að við pælum of mikið í þessu...

 Því gaurinn á bílnum, fólkið í útlöndum og fólkið í stóra húsinu á alveg eitt sameignlegt og það er að vera með risa stórt og fallegt hjarta...

Ég held við þurfum að muna eftir að muna - hjartað er það sem skiptir máli!

Það freistast allir til að tala um náungan en gleymum okkur ekki - finnum eitthvað fallegt í öllum sem við þekkjum og kynnumst - bara fyrir okkur sjálf því ég lofa það er eins og að drekka kakó..


Heitt, notalegt og kozý 


SÖR

1 comment: